Verjandi annars skipverjanna segir hann ekki hafa komið að skipulagningu á innflutningi fíkniefna. Hann hafi einungis gerst sekur um framkvæmd innflutningsins.
Skipverjarnir eru ákærðir fyrir að hafa flutt inn 14 lítra af amfetamínbasa með Dettifossi í apríl á þessu ári. Ákæruvaldið fer fram á minnst sjö og hálfs árs fangelsisdóm.
Unnsteinn Örn Elvarsson, verjandi annars skipverjans, segir hann til að mynda ekki hafa órað fyrir því að amfetamín gæti verið í fljótandi formi og því ljóst að hann hafi ekki verið meðvitaður um alvarleika brotsins. Hann hafi lýst því yfir að hann teldi magn efnanna talsvert minna en raun bara vitni.
Hann fer því fram á að þeir verði einungis dæmdir fyrir hlutdeild að brotinu. Sagði hann nærri lagi að þeir fengju 2–3 ára refsingu. Hann bendir á fyrri dóma þar sem menn hafi flutt inn meira magn fíkniefna en fengið vægari dóma en ákæruvaldið fer fram á í þessu tilfelli.
Sveinn Andri Sveinsson er verjandi hins skipverjans og fer fram á að hann verði dæmdur til lægstu refsingar sem lög taka mið af. Hann taldi báða skipverja ekki eiga að fá helmingi minna en það. Að auki teldi hann að það ætti að draga eitt ár frá vegna ungs aldurs skipverjanna og í ljósi þess að þeir væru báðir með hreint sakavottorð.
Sveinn Andri lagði áherslu á að umbjóðandi hans hefði ekki haft aðkomu að skipulagningu innflutningsins.
Hann sagðist ekki átta sig á útreikningum saksóknara um að skipverjarnir ættu að hljóta minnst sjö ára fangelsisdóm, þegar dæmi í sambærilegum málum sýndu mun vægari dóma í tilfellum burðardýra.
Að hans mati ættu meintir höfuðpaurar í málinu, Sævar Örn Hilmisson og Kastriot Pepaj, að mestu að fá sex ára dóm og skipverjarnir því einungis tvö ár, komi til refsingar.
Báðir verjendur settu spurningarmerki við rök ákæruvaldsins um götustyrkleika amfetamínsbasans, sem í þessu tilviki var metinn mikill en á dönskum mælikvarða. Þá spurði Sveinn Andri hvers vegna væri miðað við götustyrkleika í öðru landi þegar götustyrkleiki væri misjafn eftir löndum.