Stefán Karl Kristjánsson, verjandi Sævars Ernis Hilmissonar, segir mikla vankanta á rannsókn lögreglu á honum í Dettifoss-málinu svokallaða. Ákæruvaldið hefur farið fram á minnst átta ára fangelsisdóm yfir Sævari fyrir að hafa staðið að innflutningi á 14 lítrum af amfetamínbasa.
Hann fer fram á sýknu yfir Sævari í ákæruliðnum sem snýr að innflutningi fíkniefna en fer fram á vægustu refsingu við þeim brotum sem hann hefur játað, svo sem vörslu stera og vopnalagabrot.
Hann sagði lögreglu einfaldlega hafa gefið sér að Sævar stæði á bak við Signal-reikninginn Cloud. Stór hluti málsins hefur snúið að því hver standi á bak við reikningana Cloud og Milan. Ákæruvaldið telur sannað að það sé Sævar og meðsakborningur hans Kastriot Papej.
Stefán taldi aftur á móti ekki sannað að Sævar stæði á bak við reikninginn. Signal er dulkóðað samskiptaforrit.
Gefur ákæruvaldinu hamar og það sér nagla út um allt
Stefán segir ljóst að rannsókn lögreglu hafi verið léleg. „Hún var svo léleg,“ sagði hann aftur til að undirstrika mál sitt í dómsal. Á henni væri engu að síður byggt í máli þar sem ákæruvaldið færi fram á margra ára frelsissviptingu. Þá sagði hann lögreglu ekki hafa fundið sig knúna til að bregðast við ábendingum Sævars í málinu.
Þá vísaði hann til ummæla Kamölu Harris um að þegar ákæruvaldið fengi hamar færi það að sjá nagla út um allt.
Hann benti á að lögregla hefði ekki fylgst með Sævari í aðdraganda smyglsins né hefði nafn hans komið upp fyrr en 13. apríl þegar efnin voru löngu komin til landsins. Þá spurði hann hvaða máli það skipti að hann hefði hitt skipverjana. Þar hefðu engin viðskipti né skipulagning átt sér stað.
Eru lögreglumenn heilagari en aðrir?
Hann gagnrýnir framlagningu ákæruvaldsins á gögnum við fyrsta dag aðalmeðferðar. Þá hafi saksóknari meðal annars lagt fram mynd af vodkaflöskum. Sagði hann það skjóta skökku við í ljósi þess að ákæruvaldið hefði áður sagt að ekki væru fleiri sönnunargögn í málinu. Ákæruvaldið hefði því ekki sagt satt í fyrstu.
Þar að auki væru engin gögn um það hvenær myndirnar væru teknar og þær væru í þokkabót í andstöðu við lýsingar skipverjanna á því hvað þeir hefðu komið með til landsins.
„Eru lögreglumenn eitthvað heilagari en aðrir?“ spurði Stefán og sagði annað eins hafa komið fyrir að lögreglumenn hefðu verið staðnir að ósannindum.
Engin gögn sýni að Kastriot hafi snert efnin
Leó Daðason, verjandi Kastriot Papej, fer fram á sýknu yfir honum í ákærulið er lýtur að aðild hans að innflutningi á amfetamínbasanum.
Hann fer sömuleiðis fram á sýknu vegna ákæru sem snýr að marijúana sem fannst á heimili Papej. Þá telur hann ekki hægt að refsa Papej fyrir testósterón sem fannst á heimili hans, enda hafi lítið magn þess bent til þess að það væri til einkaneyslu.
Varðandi meinta aðkomu hans að innflutningi efnanna með skipinu Dettifossi í apríl bendir Leó á að Papej hafi aldrei snert efnin né hafi hann hitt skipverjana sem fluttu efnin inn með skipinu.
Hvorugur skipverjanna þekki Papej
Báðir skipverjarnir hafa sagt að þeir þekki ekki Papej. Leó segir engin gögn liggja fyrir sem bendi til þess að hann hafi haft vitneskju um fíkniefnin og hvað þá skipulagt innflutning þeirra. Sönnunarkröfum sé því ekki mætt.
Engin gögn liggi fyrir sem tengi hann við málið. Ákæruvaldið telur yfir allan vafa hafið að Papej hafi staðið á bakvið Signal-reikning undir nafninu Milan sem hafi verið í samskiptum við reikninginn Cloud á sama forriti.
Þessir tveir reikningar hafi skipulagt innflutninginn. Sævar Örn Hilmisson meðsakborningur hans í málinu er sakaður um að standa á bak við Cloud.
Ekki sá eini sem þekkti fjölskyldu Sævars
Saksóknari hefur meðal annars talað um skilaboð þar sem Milan spyr Cloud hvort [nafn konu Sævars] og börnin kæmu daginn eftir. Leó sagði engan ágreining vera um það að Sævar og Papej væru vinir og að þeir þekktu þar af leiðandi til barna og sambýliskvenna hvor annars.
Til að mynda lægi fyrir að þegar Sævar hefði farið á Suðurland, þar sem ákæruvaldið segir gögn sýna að Cloud-síminn hafi farið með, hefðu Papej og kona hans gætt sonar Sævars og konu hans.
Það að einstaklingurinn á bak við Signal-reikninginn Milan hafi spurt til konu Sævars og barna þýði ekki að Papej hafi staðið bak við reikninginn, enda sé hann ekki sá eini sem þekki til þeirra.