Bandaríski milljarðamæringurinn Warren Buffett hefur ákveðið að víkja sem stjórnarformaður Berkshire Hathaway. Buffett er 96 ára og hefur verið í forystu Berkshire Hathaway í rúmlega hálfa öld.
Félagið var upphaflega textílfyrirtæki sem hefur í tíð Buffetts orðið að gríðarstórri samsteypu og er metið á yfir þúsund milljarða Bandaríkjadala.
Tugir fyrirtækja heyra undir samsteypuna, þar á meðal Duracell og bandaríska tryggingafélagið Geico og hún á líka töluvert af hlutafé í fyrirtækjum eins og Coca-cola.
Stjórnartaumarnir fara til Howards Buffett, sonar Warrens Buffett sem ætlar þó ekki að víkja alfarið út stjórninni.
Buffett tilkynnti á síðasta ári að hann hygðist stíga til hliðar.