Ríkisstjórnin hefur enn vel starfhæfan meirihluta á þingi þrátt fyrir vandræðagang innan Flokks fólksins. Þetta segir Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði. Hinir stjórnarflokkarnir geta lítið gert annað en að rækta sambandið við þingmenn og ráðherra flokksins.
Flokkur fólksins veiki hlekkurinn
Styr hefur staðið um Flokk fólksins í ríkisstjórnarsamstarfinu. Tíð stólaskipti hafa verið í ráðherraembættum flokksins og í byrjun árs sagði Guðmundur Ingi Kristinsson af sér sem mennta- og barnamálaráðherra. Í apríl sagði hann sig úr flokknum.
Í viðtali við RÚV í gær sagðist hann hafa hætt í flokknum eftir að Inga Sæland, formaður, krafðist afsagnar hans úr ráðherrastól.
Inga neitar að hafa sagt honum að segja af sér ráðherraembætti og að það hafi komið henni í opna skjöldu þegar hann sagði sig úr flokknum.
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir það alltaf veikja ríkisstjórn að missa mann fyrir borð.
„Þegar þingflokkur stjórnarinnar missir mann fyrir borð þá auðvitað veikist stjórnin samhliða því þannig að þetta er auðvitað veiking fyrir stjórnina.“
Guðmundur Ingi sagðist ætla að styðja ríkisstjórnina eftir afsögn sína en Eiríkur segir að ekki sé hægt að treysta slíkan stuðning. En engu að síður hafi ríkisstjórnin vel starfhæfan meirihluta á þingi.
„Flokkur fólksins hefur verið veiki hlekkurinn kannski í þessari ríkisstjórn. Það hefur verið vandræðagangur með ráðherra og þingmenn. Þetta er auðvitað óhefðbundnari flokkur heldur en sumir aðrir. Það hefur verið ákveðinn óróleiki þar.“
Ríkisstjórnin bundin saman á trausti forystukvennana
Þegar mótvindur gegn ríkisstjórninni verður meiri hriktir í stoðum ríkisstjórnarsamstarfsins. Eiríkur nefnir í því samhengi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar í síðasta mánuði og minnkandi stuðning við ríkisstjórnina.
„Þá kemur í ljós hversu sterkar þær eru raunverulega þegar á reynir.“
Hinir flokkarnir í ríkisstjórnarsamstarfinu geta þó lítið gert í ástandinu.
„Annað en bara að rækta sambandið við bæði Ingu sjálfa og það er rétt að það hefur verið mjög sterkt samband á milli þessara þriggja forystukvenna og þessi ríkisstjórn bindst saman á þessu trausti sem ríkir milli þeirra þriggja. En svo er hægt að halda áfram að rækta sambandið við einstaka þingmenn.“
Eiríkur segir ríkisstjórnina standa í sterkari mótvindi en hún hefur tekist á við hingað til.
„Að því sögðu er í sjálfu sér ekkert sem bendir til þess að ríkisstjórnin sé á nokkrum fallanda fæti. Hún virðist standa alveg sæmilega sterkt þrátt fyrir aukna erfiðleika og ríkisstjórnir halda meðan þær hafa meiri hluta á þingi og það er ekkert sem við höfum séð enn þá að sá meirihlut sé í einhverri raunverulegri hættu.“