Þriðji og síðasti dagurinn í aðalmeðferð í Dettifoss-málinu svokallaða fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Sævar Örn Hilmarsson, Kastriot Pepaj og tveir skipverjar eru grunaðir um að flytja inn 14 lítra af amfetamínvökva frá Bremerhaven í Þýskalandi með Dettifossi í apríl.
Síðustu vitni voru kölluð til skýrslutöku fyrir dómi í dag. Þá voru skipverjarnir tveir sem eru ákærðir í málinu einnig kallaðir fyrir dóm aftur en þeir gáfu skýrslu á miðvikudaginn.
Skipverjarnir sóttu þinghald í gegnum fjarfundarbúnað. Þar voru þeir spurðir út í myndir af flöskum sem þeir eru taldir hafa notað til að smygla amfetamínbasa frá Þýskalandi.
Ákæruvaldinu var fyrst heimilt að leggja fram mynd af flöskunum í gær, þar sem verjendur mótmæltu því að hún hefði fyrst verið lögð fram á fyrsta degi aðalmeðferðar.
„Ekki réttar flöskur“
Sækjandi í málinu, Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir, spurði skipverjana út í flöskurnar fjórar í dag. Á myndum sem voru sýndar mátti sjá flöskurnar í tveimur íþróttatöskum. Í annarri töskunni mátti sjá tvær flöskur sem báðar voru vafðar í bóluplast. Í hinni voru tvær flöskur þar sem aðeins önnur var vafin í bóluplast. Hin er merkt Absolut Vodka í bláu letri.
Þá sýndi ákæruvaldið einnig mynd af öllum flöskunum án bóluplastsins þar sem þær voru allar merktar Absolut vodka í bláu letri. Á myndinni voru þrjár stórar flöskur og ein lítil.
Hvorugur skipverjanna kannaðist við að flöskurnar hefðu verið merktar með letri. Þeir könnuðust við að hafa komið flöskum fyrir í töskunum en sögðust báðir muna eftir því að þær hefðu verið alveg glærar. Þeir sögðust þó hvorugur hafa virt flöskurnar mikið fyrir sér.
Annar þeirra sagðist muna skýrt eftir því að fyrsta flaskan hefði verið glær og ómerkt. Spurður nánar út í hvaða flöskur hefðu verið merktar sagði hann litlu flöskuna hafa verið merkta Absolut vodka.
Hann sagði ljóst að flöskurnar á myndinni sem væru merktar Absolut Vodka væru ekki „réttar flöskur“. Hann útskýrði það þó ekki nánar.
Gjafmildur fyrrverandi landsliðsmaður, „widowmaker“ og Rolex-úr
Þrjú vitni komu fyrir dóminn, eitt í gegnum síma og tvö í gegnum fjarfundarbúnað. Öll sögðust vera vinir Sævars og voru spurð út í eigur sem þau höfðu ýmist gefið honum eða sótt fyrir hann. Eitt vitnið var spurt út í mótorhjól sem hann gaf Sævari.
Hann sagði ekkert tortryggilegt við gjöfina og sagði hjólið gjarnan kallað „the widow maker“ sem má skilja sem svo að hjólið sé svo hættulegt að konur þeirra sem noti slík hjól verði ekkjur. Hjólið hefði verið honum til ama og hann gefið Sævari sem væri áhugamaður.
Þá var annað vitni spurt út í Rolex-úr sem hann sótti ásamt öðrum vini fyrir Sævar í Amsterdam í október. Hann sagðist hafa sótt úrið sem greiða við Sævar þar sem þeir hefðu hvort eð er verið á leið til Amsterdam.
Þriðja vitnið var fyrrverandi landsliðsmaður sem var spurður út í Louis-Vuitton-tösku sem hann gaf Sævari. Hann minnti að hann hefði gefið honum hana árið 2023. Spurður hvers vegna sagðist hann gjafmildur maður og sagðist gjarnan hafa keypt töskur og aðra hluti frá Louis Vuitton.