Karlmaður játar innbrot í Stjörnugrís á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ

Mynd: Víkingur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugrís á Kjalarnesi, Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi.
Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglu.
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn og hefur hann játað umrædd brot.
Innbrotið í Dalsbú í Mosfellsdal er enn til rannsóknar og miðar rannsókninni vel.
Frekari upplýsingar um Dalsbú verða ekki veittar að svo stöddu að sögn lögreglu.