Variety greinir frá málinu og segir Kraft, sem er eigandi bandaríska ruðningsliðsins New England Patriots, hafa gefið frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum um málið. Macklemore hitaði upp fyrir Sheeran á tónleikaferðalagi hans um Bandaríkin og kallaði eftir „frjálsri Palestínu“ á tvennum tónleikum í New Jersey fyrr í september.
Macklemore sagði í kjölfarið að ástæða þess að hann hafi verið fjarlægður hafi verið vegna Robert Kraft. Auðjöfurinn hafi tekið sig til, haft samband við aðra eigendur fótboltavalla í Bandaríkjunum og hvatt þá til þess að fara fram á að Macklemore yrði fjarlægður. Macklemore sagði í kjölfarið að allar tekjur hans af tónleikaferðalaginu, rúm ein milljón Bandaríkjadollara eða 122 milljónir íslenskra króna, myndu fara til mannúðarmála á Gasa.
„Fyrr í dag, áður en Macklemore skoraði á mig að leggja fram jafnháa upphæð og hann, hringdi Ed í mig og bað mig um að skuldbinda mig til að leggja fram tvær milljónir Bandaríkjadala á móti framlagi hans til hjálparstarfs á svæðinu vegna þeirrar mannúðarkrísu sem þar ríkir. Ed hyggst nú hafa samband við aðra eigendur tónleikastaða og markmið okkar er að halda áfram að vinna saman að því að byggja brýr,“ skrifar Kraft í yfirlýsingu sinni.
Statement from Robert Kraft pic.twitter.com/as3f4RUKse
— Gillette Stadium (@GilletteStadium) September 16, 2026