Wolt tvöfaldaði rekstrarhagnað á milli ára
Wolt tvöfaldaði rekstur sinn á milli ára og skilaði um hundrað milljónum í hagnað. Sendlar eru ósáttir og segja fyrirtækið hafa lækkað laun um 40 prósent.
Heimsendingarþjónustan Wolt Enterprise Iceland ehf. tvöfaldaði rekstrartekjur sínar á einu ári og fóru úr 631 milljón króna upp í 1,24 milljarða króna á milli reikningsáranna 2024 til 2025.
Fyrirtækið snéri rekstri sínum gjörsamlega við á einu ári, en félagið skilaði um 17 milljónum í rekstrartap árið 2024 en endaði á því að skila 372 milljónum í hagnað á síðasta ári. Þar er þó aðeins hálf sagan sögð því fyrirtækið tapar 237 milljónum króna vegna gengismismunar árið 2025. Það tap var aðeins 14 milljónir árið á undan. Gengistapið tuttugufaldast á milli ára og er ekki útskýrt frekar í ársreikningi. Af þessum sökum er raunhagnaður fyrirtækisins á síðasta ári 107 milljónir króna en skilaði tapi upp á tæpar 30 milljónir árið 2024.
Segja tekjur lækka um 40 prósent
Samkvæmt ársreikningi fyrirtækisins eru 34 starfsmenn hjá Wolt en þeir voru 24 árið á undan. Launakostnaður fyrirtækisins með öllum skuldbindingum er því 277 milljónir …