Í fréttatilkynningu þess efnis segir að karlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn og hann hafi játað umrædd brot.
Fyrst var brotist inn í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Annað innbrot var svo framið í sama svínabú í byrjun þessa mánaðar.
Þá var einnig brotist inn í minkabúið Dalsbú í Mosfellsdal í lok júlí með þeim afleiðingum að mikinn fjöldi minka gekk laus um Mosfellsdal og nágrenni. Í tilkynningu lögreglu segir að það innbrot sé enn til rannsóknar og rannsókn þess miði vel vel. Frekari upplýsingar um Dalsbú verði ekki veittar að svo stöddu.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér.