Elísabet II Bretadrottning bauðst til þess að færa Díönu prinsessu aftur konunglega tign hennar á sjálfan útfarardaginn. Bróðir Díönu, Charles Spencer jarl, segist hins vegar hafa hafnað boðinu enda hafi það komið allt of seint.Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri bók Spencer, Swan Song: Diana, My Sister, sem Daily Mail birtir nú kafla úr.Bókin, sem kemur út í næstu viku, hefur þegar vakið mikla athygli í Bretlandi og hefur Buckingham-höll gripið til þess óvenjulega ráðs að svara hluta þeirra fullyrðinga sem þar koma fram.
Leyndarmál frá útfarardegi Díönu afhjúpað tæpum 30 árum síðar