Fimm ár dugðu ekki til að semja um lóðir Tækniskólans
Meirihlutinn var ítrekað varaður við seinagangi í lóðasamningum sem drógust í fimm ár. Tækniskólinn hefur nú hætt við uppbyggingu í Hafnarfirði og íhugar fjárkröfu á hendur bænum.
Fundargerðir Hafnarfjarðarbæjar sýna að meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks ýtti ítrekað á undan sér grundvallarvandanum varðandi lóðakaup í tengslum við Tækniskólann, sem var að klára samninga við lóðarhafa. Kostnaðurinn átti að vera 4,1 milljarður en verkefnið fór út um þúfur eftir að samningar tókust ekki, eftir fimm ára vinnu og ítrekaðar viðvaranir minnihlutans.
Meirihlutinn samþykkti deiliskipulag vegna skólans í upphafi þessa árs, þrátt fyrir að ekki var búið að semja um kaup á lóðum undir uppbyggingu skólans. Minnihlutinn, undir forystu Samfylkingarinnar, benti ítrekað á seinagang í málinu.
Niðurstaðan er sú að Tækniskólinn mun ekki rísa í Hafnarfirði eftir margra ára undirbúningsvinnu og komu fréttirnar flatt upp á bæjarbúa. Það er þó ljóst samkvæmt fundargerðum í hvað stefndi. Minnihlutinn varaði margsinnis við hægagangi meirihlutans í samningaviðræðum við lóðarhafa á svæðinu.
Óvenjuleg staða
Árið 2024 voru uppi skýrar vísbendingar um að meirihlutinn væri að renna út á tíma ætlaði hann að ná að …