Ungmenni leitaði á bráðamóttöku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast vegna fjölbreyttra mála í gærkvöldi og í nótt, þar á meðal hnífaógnar, eftirfarar, innbrota og alvarlegs atviks þar sem flugeldi var kastað inn í bifreið.
Í einu málinu var tilkynnt um mann sem hafði ráðist á annan og ógnað honum með hnífi áður en hann ók á brott. Lögregla hafði uppi á manninum en hann sinnti ekki fyrirmælum um að stöðva bifreið sína og hófst þá eftirför. Lögregla þurfti að aka á bifreið mannsins til að stöðva för hans. Hann veitti síðan lögreglu mótspyrnu og var vistaður í fangaklefa vegna rannsóknar málsins.
Þá var lögregla kölluð til eftir að flugeldi hafði verið kastað inn í bifreið þar sem fólk var statt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu óku ungmenni að bifreiðinni í annarri bifreið og köstuðu flugeldinum inn. Flugeldurinn sprakk og urðu bæði ökumaður og farþegar fyrir tjóni auk þess sem bifreiðin skemmdist. Lögregla leitaði að bifreið ungmennanna án árangurs.
Nokkur innbrot voru jafnframt tilkynnt. Í einu tilvikinu hafði maður farið inn í heimahús meðan íbúar sváfu og stolið verðmætum. Önnur tilkynning um innbrot reyndist hins vegar eiga sér saklausari skýringu. Þar hafði húsráðandi læst sig úti og farið inn á eigið heimili í gegnum glugga.
Lögregla rannsakar einnig líkamsárás á ungmenni sem leitaði á bráðamóttöku, slagsmál þar sem manni var ógnað með grjóti og eld í bifreið. Bifreiðin var alelda þegar lögregla og slökkvilið komu á vettvang og slökkti slökkvilið eldinn.
Auk þess voru tveir ökumenn handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Annar þeirra var jafnframt sviptur ökuréttindum. Báðir voru látnir lausir að lokinni blóðsýnatöku.