Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur vísað frá kæru konu sem krafði verktakafyrirtæki um endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem sú fyrrnefndi hafði greitt vegna framkvæmda sem hún segir fyrirtækið aldrei hafa lokið. Krafðist konan einnig endurgreiðslu á ýmsum öðrum kostnaði sem hún sagðist hafa orðið fyrir vegna vanefnda verktakans, meðal annars kostnaði vegna sálfræðiaðstoðar. Fyrirtækið bar því hins vegar við að framkvæmdirnar hafi reynst umfangsmeiri en gert hafi verið ráð fyrir og að konan hefði ekki greitt reikning vegna vinnu og efniskostnaðar og þar að auki haft í hótunum.
Segist hafa þurft að leita sér sálfræðiaðstoðar eftir vanefndir verktakafyrirtækis