Íranski byltingarvörðurinn segir sjóher landsins hafa gert árás á olíuflutningaskip á Hormússundi eftir að áhöfnin reyndi að sigla þar um án leyfis, eða ólöglega eins og það er orðað í yfirlýsingu. Skipið ber heitið Trend og nam staðar eftir að eldur kviknaði um borð eftir árásina.
Það siglir undir fána Tógó að sögn byltingarvarðarins. Reuters-fréttaveitan hefur þetta eftir ríkisfjölmiðlum í Íran. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segir að sendinefnd frá Íran hafi verið veitt vegabréfsáritun til að taka þátt í fundum Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í næstu viku.