Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Flugvirkjafélags Íslands til fundar klukkan tólf á hádegi í dag. Morgunblaðið hefur þetta eftir Ástráði sem segist ætla að gera úrslitatilraun til að koma í veg fyrir ótímabundið verkfall flugvirkja sem hefst að óbreyttu aðfaranótt 23. september.
Ástráður kveðst hafa hitt samningsaðila á miðvikudag og fimmtudag og að niðurstaðan hafi verið að boða til samningafundar.
Ríkissáttasemjari hefur þann möguleika, lögum samkvæmt, að leggja fram miðlunartillögu sem fresta myndi verkfalli meðan greidd væru atkvæði um hana. Icelandair hefur sagt ágreining vera mestan um launaliðinn.
Morgunblaðið hefur eftir Jóhannesi Þór Skúlasyni, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, að fyrirhugað verkfall sé þegar tekið að hafa verulega skaðleg áhrif á ferðaþjónustufyrirtæki um land allt.
Stjórnvöld þurfi að íhuga áhrif verkfallsins á efnahagslífið ekki síst vegna markmiðs þeirra um hallalaus fjárlög á næsta ári. Búast má við miklum röskunum á flugáætlun Icelandair komi til verkfalls flugvirkja.
Greiningarfyrirtækið Akkur sagði á miðvikudag að verkfallið gæti kostað Icelandair hundruð milljóna dag hvern vegna tekjutaps og bóta til farþega. Þá áréttaði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, að allt flug væri enn á áætlun og að þeim sem eigi bókað flug 23. og 24. september byðist að færa ferðir sínar.
Icelandair ber að bjóða annað flug eða endurgreiðslu komi til röskunar og jafnvel skaðabætur. Bogi sagði að Icelandair fylgdi gildandi reglum og að hvert einstakt tilvik varðandi mögulegar skaðabætur yrði metið.