Bláuggatúnfiskur fannst rekinn á land við Leiruvog á Akureyri síðasta föstudag, viku eftir að tunglfiskur fannst rekinn þar skammt frá.
Akureyri.net hefur eftir Magnúsi Víðissyni og Hreiðari Þór Valtýssyni, vísindamönnum í sjávarútvegsfræðum við Háskólann á Akureyri, að merkilegt sé að finna þessar fisktegundir í Eyjafirði og jafnvel stórmerkilegt að rekast á þær báðar með skömmu millibili.
Báðar tegundir lifa almennt í talsvert hlýrri sjó og Hreiðar Þór nefnir að nú sé hlýtt tímabil í hafinu, sjávarhiti sé um tíu gráður. Þá verði einna helst vart við svona sjaldgæfa gesti sem séu annars sunnar.
Hann segir þó engar heimildir fyrir því að bláuggatúnfiskur hafi fundist í Eyjafirði áður þótt hann veiðist af og til fyrir sunnan land auk þess sem hann nefnir dæmi úr Ísafjarðardjúpi og Vopnafirði.
Bláuggatúnfiskur þykir herramannsmatur og er eitt verðmætasta sjávarfang sem til er. Japönsk sushi-veitingastaðakeðja keypti 234 kílógramma fisk fyrir jafnvirði tæpra 400 milljóna króna í janúar, sem er metverð. Tunglfiskur getur orðið gríðarstór og er talinn óætur.
Magnús Víðisson veltir fyrir sér hvort koma fiskanna sé ekki til marks um breytingar í hafinu líkt og loftslaginu þannig að í framtíðinni verði framandi gestir ekki jafn ókunnuglegir og nú.
„Einhver sagði, allt er þegar þrennt er, þannig að við bíðum spenntir eftir að heyra hvort þriðja óvenjulega tegundin finnst einhvertíma á næstunni.“ Ísland hefur heimild til að veiða 254,13 tonn af bláuggatúnfiski eftir úthlutun Atlantshafs túnfiskveiðiráðsins fyrr á þessu ári.
Heimildin var hækkuð um 13% frá árinu áður. Þá var sagt á vef Stjórnarráðsins að íslenskar útgerðirAtlantshafstúnfiskveiðiráðsinsr á Austur-Atlantshafs bláuggatúnfiski um tíu ára skeið. Allur bláuggi sem slæðist með sem meðafli hefði verið skráður.
Samkvæmt ströngum reglum um veiðar á bláuggatúnfiski ber þeim skipum sem nýta heimildina að sigla undir íslenskum fána.
Fulltrúar Íslands innan ráðsins hafa sagt nauðsynlegt að endurskoða reglur sem banna erlend leiguskip og óskað eftir vísindalegum rökum, enda gildi slík takmörkun eingöngu um veiði á bláuggatúnfiski. Stofninn sé sterkur og verndun hans og veiðistjórnun sé helsta dæmi um verndun fiskistofns síðustu áratugi.