Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta í gærkvöldi og í nótt og eru 60 mál skráð í kerfum lögreglu eftir nóttina. Fjórir gista fangageymslur.Í umdæmi lögreglustöðvar 1 var tilkynnt um einstakling sem réðist á annan og ógnaði honum með hníf. Hann fór svo í burtu á bifreið. Lögregla fann manninn sem fór ekki að fyrirmælum um að stöðva bifreið sína og hófst þá eftirför. Greip lögregla til þess ráðs að aka á bifreiðina til að stöðva hana.
Ógnaði manni með hníf – Flúði lögreglu og slóst síðan við hana