Framkvæmdasýslan Ríkiseignir og Reitir hafa gengið frá samningi um að fyrirtækið reisi 9.100 fermetra hjúkrunarheimili fyrir 140 íbúa á Akureyri. Stefnt er að því að taka hjúkrunarheimilið í notkun fyrir árslok 2030.
Samkvæmt tilkynningu frá Reitum hefst hönnun og undirbúningur hússins núna. Það verður blanda af forsmíðuðum og forsteyptum einingum. Sú aðferð á að stytta framkvæmdatíma og auka sveigjanleika.
Ríkið leigir húsið af Reitum í 25 ár eftir að það verður tilbúið. Heilsuvernd, sem er einkarekið fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu, sér um reksturinn.