Kjörstaðir hafa verið opnaðir í austanverðu Rússlandi í þingkosningum sem standa næstu þrjá daga. Alls verða 450 fulltrúar kjörnir í Dúmuna, neðri deild rússneska löggjafarþingsins. Helmingur er kjörinn í listakosningum og helmingur í einstaklingskosningum.
Allar líkur eru taldar á stórsigri Sameinaðs Rússlands, flokks forsetans Vladimírs Pútín. Stjórnarandstöðuflokkum hefur að stórum hluta verið úthýst, þar á meðal Yabloko, sem er eini flokkurinn sem andæfir innrásarstríðinu í Úkraínu. Fulltrúar hans eru þó í einstaklingskjöri.
Háværar raddir hafa verið uppi um að rangt hafi verið haft við í fyrri þingkosningum í landinu. Rússland þekur níu tímabelti og því voru kjörstaðir á Kamstjaka-skaga og í Tsjúkota opnaðir mörgum klukkustundum áður en það gerist í höfuðborginni Moskvu.