Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur ákveðið að frá og með 11. september sé hætt að leggja dagsektir á partasöluna Auto ehf. að Setbergi á Svalbarðsströnd. Nefndin synjaði hins vegar að sinni beiðni fyrirtækisins frá 7. september um að felldar yrðu niður áfallnar og óinnheimtar sektir, samkvæmt frétt vefmiðilsins Akureyri.net.
Ekki liggur enn fyrir fullnægjandi staðfesting á að öllum úrbótum sé lokið, að því er segir í bókun nefndarinnar. Eftir fundi í vor fékk Auto tiltekinn frest til að fjarlægja lausamuni sýnilega frá þjóðvegi og farga spilliefnum. Uns því yrði lokið skyldi fyrirtækið greiða dagsektir.
Miðar í rétta átt
Heilbrigðisnefndin lítur svo á að þróunin sé loks í rétta átt eftir áralangan þrýsting af hennar hálfu og starfsfólks heilbrigðiseftirlits um að Auto taki til á lóðinni þar sem sjá má fjölda ökutækja og bílhluta auk spilliefna á borð við rafgeyma ásamt því að víða sé olíumengun í jarðvegi.
Úrbæturnar eigi sér þó langan aðdraganda með ályktunum og áskorunum nefndarinnar auk 50 þúsund króna dagsekta síðan í októberlok 2024.
Heildarfjárhæð sekta nemur um 34 milljónum króna en Akureyri.net kveðst ekki hafa upplýsingar um hve mikið er ógreitt. Eftirlitsmenn munu áfram fylgjast með þróun mála og leggja greinargerð fyrir næsta fund heilbrigðisnefndarinnar um stöðuna ásamt tillögu að endanlegri afgreiðslu málsins.