Hægur vindur verður víðast hvar á landinu í dag. Sunnlendingar geta vænst þess að það þykkni upp yfir sjó og úrkomubakki komi inn á landið. Hann nær þó ekki langt. Annars staðar verða stöku skúrir á sveimi.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Austlæg eða breytileg átt, 3-8. Skýjað að mestu og stöku skúrir á víð og dreif, en dálítil rigning sunnantil seinnipartinn. Þokuloft með norður- og austurströndinni. Hiti 7 til 13 stig, svalast í þokuloftinu.
Norðaustlægari á morgun, rigning eða súld með köflum, einkum norðaustantil, en úrkomuminna um landið suðvestanvert. Hiti breytist lítið.