Einn er látinn hið minnsta og nokkrir særðir eftir skotárás á framhaldsskóla á eyjunni Mindano á Filippseyjum. Misvísandi upplýsingar berast frá svæðismiðlum og ekki er búið að staðfesta hver framdi árásina.
Það var komið síðdegi á Filippseyjum þegar árásin var framin í dag. Reynaldo Tamayo, héraðsstjóri í Suður-Cotabato, sagði við fjölmiðla fyrr í dag að einn hefði látist og fjórir fluttir á sjúkrahús.
En fjölmiðlar á svæðinu segja fórnarlömbin mun fleiri og vísa þar til annarra yfirvalda en héraðsstjórnar.
Rauði krossinn á Filippseyjum hefur sent teymi á vettvang og lögregla hefur hafið rannsókn. Skólinn heitir Banga National High School og er á eyjunni Mindano.