Þegar F-35 þotunum var flogið frá Íslandi til Grænlands fengu þær eldsneyti úr franskri eldsneytisvél yfir Íslandi, samkvæmt frétt á vef danska varnarmálaráðuneytisins. Áhöfn eftirlitsflugvélar Atlantshafsbandalagsins fylgdist svo með flugferðinni en herþotunum var einnig fylgt eftir af danskri Challenger-eftirlitsflugvél.
Bandarísku og kanadísku þotunum var flogið til Grænlands frá Goose Bay í Kanada.
Þó þetta hafi verið í fyrsta sinn sem dönskum F-35 herþotum var lent á Grænlandi hafa Danir oft gert F-16 þotur út frá Grænlandi í gegnum árin.
Varnarmálaráðuneytið danska birti í morgun myndband þar sem rætt var við einn af flugmönnum F-35 þotnanna, þar sem hann sagði frá æfingunum og hvernig þær voru framkvæmdar. Myndbandinu fylgir mikið af myndefni af flugvélunum á flugi.
Æfingarnar, sem kallast Operation Vanguard í Bandaríkjunum, eru liður í Arctic Sentry verkefni NATO, sem gengur út á að auka og bæta varnir bandalagsins á norðurslóðum. Verkefni þetta var sett á laggirnar eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, krafðist þess að NATO tæki aukna ábyrgð á vörnum norðurslóða.
Var það eftir að hann byrjaði að krefjast þess að Bandaríkin eignuðust Grænland á grunni þjóðaröryggis Bandaríkjanna og vegna meintrar ógnar frá Rússlandi og Kína.
Undanfarnar tvær vikur hafa rúmlega fjögur hundruð hermenn frá ellefu aðildarríkjum NATO einnig tekið þátt í æfingum á jörðu niðri í suðurhluta Grænlands. Þær æfingar bera nafnið Arctic Shield og er ætlað að þjálfa hermenn við erfiðar aðstæður á norðurslóðum.
Helsta markmið æfinganna er, samkvæmt danska varnarmálaráðuneytinu, að láta hermenn upplifa hversu erfitt það er að lifa af á norðurslóðum, við þessar erfiðu aðstæður.