Rannveig Pálsdóttir er fallin frá

Mynd: Shutterstock
Rannveig Pálsdóttir, húsmóðir og fyrrverandi gjaldkeri við Menntaskólann að Laugarvatni, er látin, 91 árs að aldri.
Morgunblaðið greindi frá andláti hennar.
Rannveig ólst upp í Stóru-Sandvík og lauk landsprófi á Selfossi. Hún gekk síðar í Húsmæðraskólann í Reykjavík og starfaði meðal annars við lyfjaafgreiðslu og verslun áður en hún hóf skrifstofustörf við Menntaskólann að Laugarvatni. Þar var hún um árabil gjaldkeri mötuneytis skólans.
Eiginmaður hennar var Kristinn Kristmundsson, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni frá 1970 til 2002. Þau eignuðust fjögur börn.
Rannveig lét einnig mikið að sér kveða í félags-, menningar- og kirkjustarfi. Eftir starfslok stofnuðu hjónin styrktarsjóð sem styður nýstúdenta til frekara náms og starfa.