Javier Oropez, fyrrverandi borgarstjóri úr hópi stjórnarandstöðuflokka Venesúela, var handtekinn tveimur dögum eftir að hann sneri aftur til landsins úr útlegð á Spáni. Hann hafði þá veitt dagblaði í heimaborg sinni Torres viðtal.
Oropez var handtekinn sama dag og önnur umferð sáttaviðræðna bráðabirgðastjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar hófst, að undirlagi Bandaríkjamanna. Útlægur stjórnarandstöðuleiðtoginn Maria Corina Machado sagði handtökuna sýna eðli stjórnarinnar og útskýra hví almenningur hefði ímugust á henni.
Dinorah Figuera, sem leiðir samninganefnd stjórnarandstöðunnar, fordæmdi handtökuna og sagðist hafa fengið tryggingu fyrir því að Oropez yrði umsvifalaust sleppt. Ætlunin með viðræðunum er að marka leið að pólitískum umskiptum og endurnýjun mannréttinda.
Ein helsta krafa stjórnarandstöðunnar er að efnt verði til lýðræðislegra kosninga, átta mánuðum eftir að Bandaríkjaher handsamaði forsetann Nicolas Maduro og eiginkonu hans Ciliu Flores. Figuera kveðst jafnframt krefjast frelsunar allra pólitískra fanga í landinu.