Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er búin að upplýsa innbrot í nokkur alifugla- og svínabú sem framin voru í sumar.
Lögreglan segir að karlmaður á þrítugsaldri hafi verið handtekinn vegna innbrotanna. Hann hefur játað sök.
Innbrotin og eignaspjöllin sem maðurinn játar á sig voru í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og í alifuglabú Reykjabúsins í Mosfellsbæ. Hann játaði einnig á sig innbrot í alifuglabú og svínabú á Suðurlandi og Kjalarnesi.
Ekki er búið að upplýsa innbrotið í Dalsbú í Mosfellsdal. Það er enn til rannsóknar. Lögregla segir að þeirri rannsókn miði vel.
Fréttin hefur verið uppfærð.