Það hefur sætt gagnrýni af hálfu verjanda Sævars að lögreglan hafi lagt hald á lúxusmuni á heimili Sævars.
Einn vinur Sævars bar vitni fyrir dómi vegna Rolex-úrs sem vinurinn kvaðst hafa sótt fyrir Sævar í skartgripaverslun til Amsterdam. Þegar verjandi spurði hvers vegna hann bæri skýrslu fyrir dómi svaraði hann að hann hefði sjálfur haft samband við Stefán Karl, verjanda Sævars, eftir að hann frétti að þessi tiltekni munur væri á meðal gagna málsins.
„Ég er mjög gjafmildur“
Síðan bar annar vinur Sævars, Viðar Örn Kjartansson, fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður í knattspyrnu sem nú spilar með uppeldisfélaginu Selfossi, vitni fyrir dómi þar sem hann var spurður út í Louis Viutton-tösku sem lögregla lagði hald á við húsleit heima hjá Sævari. Hann sagði að um gjöf til Sævars hefði verið að ræða sem hann hefði fært honum fyrir um þremur árum. Hann hefði keypt töskuna erlendis.
„Ég er mjög gjafmildur maður og hef gefið vinum mínum ótrúlega mikið í gegnum tíðina.“
Spurður hvernig taskan liti út svaraði hann að hún væri ferköntuð og hörð. Þegar hann lýsti því að þetta væri í raun eins og kvenmannstaska mátti heyra fliss í dómsalnum.
„Widowmaker“
Að lokum bar enn annar vinur Sævars vitni fyrir dómi og gerði grein fyrir mótorhjóli sem lögregla lagði hald á. Um var að ræða Kawasaki Ninja mótorhjól.
Vitnið sagðist sjálft ekki hafa haft neitt við bifhjólið að gera og leyfði honum að eiga það. Fyrir „dellukarl eins og hann Sævar“ væri slíkt hjól mikils metið.
Hann útskýrði að hjólið væri kallað „the Widowmaker“.
„Ég held að fá mótorhjól hafi drepið fleiri menn,“ sagði hann og uppskar hlátur í dómssal.
Virtist vitnið ekki skilja hvers vegna þetta mótorhjól var til umfjöllunar í dómsmálinu og kvaðst vona að dómurinn agnúaðist ekki of mikið út í „þessa mótorhjóladruslu“.
Vitnið brýndi svo fyrir dómnum að dæma ekki bókina af kápunni.