Lilja er eigandi hússins ásamt systkinum sínum þeim Hrafni Haukssyni og Huldu Hauksdóttur. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og segir á fasteignavef Vísis að engu hafi verið til sparað við hönnun og byggingu þess. Glæsilegur hvítur marmari er á gólfum mikils hluta hússins.
Lóð hússins er 836 fermetrar og segir í fasteignaauglýsingunni að hann sé afar fallegur og skjólgóður. Þar sé að finna steyptan gangstíg, blómaker og stoðveggi umhverfis alla lóðina frá bílaplani.
Þetta er ekki fyrsta húsið eftir Kjartan sem Lilja setur á sölu. Árið 2022 seldi hún 516 fermetra einbýlishús á Arnarnesi. Handbragð Kjartans sést vel á báðum húsum þar sem súlur eru í forgrunni.