Þetta kom fram í málflutningi Arnfríðar Gígju Arngrímsdóttur saksóknara í dag, þegar réttarhöldum í Dettifossmálinu lauk. Sævar og Kastriot eru ákærðir, ásamt tveimur ungum skipverjum af gámaskipinu Dettifossi, fyrir innflutning á fjórtán lítrum af amfetamínvökva.
Saksóknari krefst þess einnig að sakborningar greiði 9,4 milljóna króna sakarkostnað og að efni tengd málinu verði gerð upptæk.
Saksóknari segir fullsannað að skipverjarnir tveir sem fluttu efnin frá Þýskalandi séu aðalmenn málsins, ekki hlutdeildarmenn, og eigi að sæta ábyrgð sem slíkir.
Sakborningum til málsbóta verði þó að líta á að skipverjarnir hafi hreint sakavottorð, sem og Kastriot. Sævar hafi þó ekki hreina sakaskrá en þau brot sem þar séu komi ekki til skoðunar í þessu máli enda aðallega um umferðarlagabrot og annað slíkt að ræða.
Skipverjum til málsbóta komi að þeir séu ungir að árum, aðeins um 21 árs og 22 ára. Þá hafi þeir verið mjög samvinnufúsir, einkum annar þeirra. Þeir hafi báðir sýnt iðrun. Til þyngingar er litið að um mikið magn, um 14 lítrar af amfetamínvökva, sé að ræða af töluverðum styrkleika, sem sé um 47 prósent.
„Þetta er mikið magn sem þeir vissu að þeir væru að flytja inn,“ sagði hún um skipverjana.
Fréttin er í vinnslu.