Andersson falið að mynda ríkisstjórn í Svíþjóð
Magdalena Andersson, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, hefur fengið það verkefni að reyna að mynda ríkisstjórn eftir þingkosningarnar. Flokkarnir fjórir á vinstri vængnum hafa þriggja sæta meirihluta á sænska þinginu en ágreiningur er um aðkomu Vinstriflokksins að ríkisstjórn.
Forseti sænska þingsins tilkynnti í dag að að loknum viðræðum við leiðtoga flokkanna eftir þingkosningarnar hefði hann falið Magdalenu Andersson, leiðtoga Jafnaðarmannaflokksins, að mynda ríkisstjórn.
Andersson, sem var fyrsta konan til að gegna embætti forsætisráðherra Svíþjóðar á árunum 2021 til 2022, stendur nú frammi fyrir því erfiða verkefni að sameina vinstriblokk sem er klofin vegna hugmyndafræðilegs ágreinings.
„Ég tek þetta verkefni að mér af mikilli auðmýkt og mun vinna að því með uppbyggilegum hætti að mynda nýja ríkisstjórn,“ sagði Andersson, 59 ára, í yfirlýsingu sem hún birti á Instagram.
„Ég vil leiða ríkisstjórn sem hrindir í framkvæmd þeirri nýju stefnu sem sænska þjóðin kaus — stefnu sem færir Svíþjóð áfram og heldur landinu okkar sameinuðu.“
Búist er við að Andersson reyni að mynda ríkisstjórn með hinum þremur flokkunum á vinstri vængnum, sósíalíska Vinstriflokknum, frjálslynda Miðflokknum og Umhverfisflokknum.
Miðflokkurinn hefur sagt að hann muni leggjast gegn ríkisstjórn þar sem Vinstriflokkurinn …