Í ágúst óskaði innviðaráðherra formlega eftir úttekt Fjarskiptastofu á því hvernig útfösun 2G- og 3G-farnetskerfanna hefði gengið hér á landi. Fjarskiptastofa skilaði 55 blaðsíðna skýrslu til ráðherra sem kynnti hana fyrir ríkisstjórn í morgun.
Umkvörtunarefni almennings vegna lokunar á 2G og 3G hafa aðallega snúist að tveimur hlutum. Annars vegar verra farsímasambandi og hins vegar vandræðum með neyðarhringingar til Neyðarlínunnar.
Eitt af því sem fram kemur í skýrslunni er að Fjarskiptastofa telur misskilnings hafa gætt um valdheimildir sínar til þess að stöðva útfösunina. Útfösunin hafi verið að frumkvæði eigenda kerfisins sem eru fjarskiptafyrirtæki landsins. Stofan hafi á engum tímapunkti getað gripið inn í og stöðvað fyrirhugaða lokun kerfanna.
Samkvæmt lögum eru almenn fjarskiptanet ekki skilgreind sem öryggisnet almennings og Fjarskiptastofa hefur ekki valdheimildir til að banna fjarskiptafélögum að fasa út kerfi. Þá segir í skýrslunni: „Ekki væri séð að FST hefði heimildir til þess að leggja fyrir fyrirtækin að reka eldri tæknilausnir lengur en þau teldu hagkvæmt og/eða framkvæmanlegt, m.a. með tilliti til viðhalds og aðgangs að nauðsynlegum varahlutum.“
Hennar aðkoma hafi einungis verið að samræma tímasetta áætlun um útfösun 2G- og 3G-þjónustu. „Ákvörðun tímasetningar lokunar 2G- og 3G-þjónustu er alfarið fjarskiptafélaganna. Þau hafa ákveðið að loka bæði 2G- og 3G-þjónustu í lok árs 2025, en á þeim tímapunkti verða tæp fjögur ár liðin frá því að áform um lokun voru kynnt opinberlega í samráði Fjarskiptastofu.“
Leggja til að Fjarskiptastofa fái valdheimildir til að grípa inn í
Fjarskiptastofa leggur til úrbætur og næstu skref í lokakafla skýrslunnar. Hún vill skoða hvort ástæða sé til þess að gefa þeim beinar inngripsheimildir til þess að nýta sér þegar þörf krefur.
„Meta þarf hvort ástæða sé til að setja í lög heimild til að grípa inn í eða stöðva útfösun eða meiriháttar kerfisbreytingar fjarskipta þegar sýnt þykir að almannaheill er stefnt í tvísýnu. Þessar aðstæður geta verið ófyrirséðar þegar lagt er af stað í tæknileg umbreytingarverkefni og nauðsynlegt getur verið fyrir stjórnvöld að geta gripið inn í ef almannaheill eða þjóðaröryggi þykir stefnt í óvissu eða voða.“
Tilkynningu frá innviðaráðuneytinu má sjá á vef þess.