Ákæruvaldið fer fram á að lágmarki átta og hálfs árs fangelsisdóm yfir þeim Sævari Erni Hilmarssyni og Kastriot Pepaj og minnst sjö ára fangelsisdóm yfir tveimur ungum skipverjum sem einnig eru ákærðir í svokölluðu Dettifossmáli.
Þeir eru ákærðir fyrir að hafa staðið að innflutningi á samtals 14 lítrum af amfetamínbasa með Dettifossi í vor.
Í málflutningi Arnfríðar Gígju Arngrímsdóttur kom fram að þótt annar skipverjanna hefði dregið úr framburði sínum fyrir dómi, lægi fyrir framburður hans hjá lögreglu þar sem hann sagði Sævar standa á bak við Signal-aðgang sem var notaður til að skipuleggja innflutninginn.
Fyrir dómi hafi skipverjinn sagst hafa verið undir þrýstingi frá lögreglu til að nafngreina Sævar. Saksóknari gaf lítið fyrir það og benti á að framburður hans hefði verið ritaður orð fyrir orð. Þar komi fram að hann hafi raunar nafngreint Sævar að fyrrabragði.
Hinn skipverjinn sem þekkir Sævar betur hefur aldrei nefnt hann á nafn.
„Ljóst að ónefndi maðurinn og Sævar eru einn og sami maðurinn“
Skipverjarnir segjast hafa hitt ónefndan mann, sem standi á bak við Cloud-reikninginn, á veitingahúsi. Sá maður standi á bak við skipulagningu smyglsins en þeir treysti sér ekki til þess að nafngreina hann. Saksóknari sagði þó nokkuð ljóst hver það væri.
„Það er ljóst að ónefndi maðurinn og Sævar eru einn og sami maðurinn“
Saksóknari sagði það vera skipverjunum til málsbóta að þeir væru ungir að aldri og með hrein sakavottorð. Þá hafi þeir sömuleiðis verið samvinnufúsir, lagt sig fram við að segja satt og rétt frá og sýnt iðrun.
Þeir hafi engu að síður verið virkir þátttakendur í innflutningi efnanna. Því væri ekki hægt að fallast á að hlutur þeirra yrði smættaður.
Ótrúverðugar eftiráskýringar
Kastriot Pepaj, sem er frá Albaníu en búsettur á Íslandi, hafnar sök. Hann segist ekki hafa tekið þátt í að skipuleggja innflutning á amfetamínbasanum. Ákæruvaldið segir hann hafa slegið úr og í um samskipti hans og Sævars á Signal. Konur þeirra væru fyrst og fremst í samskiptum.
Ákæruvaldið segir síðustu skilaboð sem sjáist á milli persónulegra síma Kastriot og Sævars vera í febrúar. Þá taki aftur á móti við talsverð samskipti milli Milan og Cloud-reikninganna á Signal. Cloud-síminn hafi verið tengdur neti Sævars.
Saksóknari telur sannað að Sævar hafi staðið á bak við aðgang Cloud og yfir allan vafa hafið að Kastriot hafi staðið á bak við Milan-reikninginn.
Kastriot hafi viljað meina að það væri röð óhepplegra tilviljana sem gerðu það að verkum að svo virtist sem að hann ætti hlut að málinu. Kastriot hefur sagt að svo virðist sem lögregla hafi komið fyrir efnum í tösku í herbergi hans.
Ákæruvaldið segir þá fullyrðingu úr lausu lofti gripna í örvæntingu. Sagði hún málatilbúnaðinn að mestu byggja á ótrúverðugum eftiráskýringum.
Saksóknari benti á að Sævar hefði gengist við því að eiga hluta af þeim vopnum sem voru gerð upptæk á heimili hans, meðal annars kylfur, hníf, loftbyssur, stálkúlur og teygjubyssur. Hann hafi ekki gengist við því að eiga neysluskammt af kókaíni sem fannst heima hjá honum.
Hann sagði lögreglu þó að kona hans ætti það allavega ekki.
"Ég vildi að ég ætti svona góða vini"
Þá vék hún máli sínu að munum sem voru gerðir upptækir á heimili Sævars sem vitni voru spurð um fyrr í dag. Þar á meðal voru mótorhjól, Rolex-úr og Louis Vuitton-taska. Saksóknari sagði skýringar um að vitni hefðu gefið Sævari töskuna og mótorhjólið.
Sömuleiðis væri það ótrúverðugt að maður sem væri á örorkubótum hefði fest kaup á Rolex-úri sem kostaði meira en 6 milljónir, sem vinir hans svo sóttu til Amsterdam.
„Ég vildi að ég ætti svona góða vini.“