Íþróttaveðmálafyrirtækið Novig gaf út auglýsingu í síðustu viku sem vakti mikla umræðu hjá fólki á samfélagsmiðlum.
Auglýsingin sýnir leikkonuna Sydney Sweeney nakta að leika eftir ýmsum íþróttagreinum.
Stuttu eftir að auglýsingin var birt spratt upp umræða á samfélagsmiðlum. Íþróttakonur gagnrýndu Sweeney fyrir að kynlífsvæða íþróttir kvenna. Á dögunum sem fylgdu birtu margar af þekktustu íþróttakonum heims myndbönd af sér í íþróttinni sinni með textanum: „Sydney Sweeney, svona líta konur í íþróttum út.“
Síðan í gær birti Instagram-reikningur DR P3 þetta myndband þar sem sjá má grínistann Bellu Norup, þekkt sem Skeptiske Bella, herma eftir Sydney, nema í stað íþrótta er áhersla lögð á bækur.
„Heldur þú að börn kunni að lesa? Samkvæmt niðurstöðum PISA-könnunarinnar kunna þau það ekki. Þannig við ákváðum að sýna ... bók.“
Þetta segir Bella í myndbandinu og setur sig svo í alls konar stellingar með bókum, rétt eins og Sydney Sweeney gerði með íþróttagreinarnar.
Niðurstöður PISA-könnunarinnar í Danmörku voru verri en nokkru sinni áður þar í landi, rétt eins og hérlendis. Þess vegna ákvað DR P3 að gera myndbandið. Af hverju þau hermdu eftir auglýsingu Sydney Sweeney vitum við ekki.
Við vitum þó af hverju þau fengu Bellu Norup en ekki Sweeney til að leika í myndbandinu. Þau svöruðu athugasemd við myndbandið og sögðust ekki hafa efni á að fá Sweeney, Bella væri töluvert ódýrari.