Jón Björn Blöndal bóndi er bæði með búskap á jörðinni Stafholtsey og Langholti í Bæjarsveit í Borgarfirði. Hann hvetur fólk til að birgja sig upp af kartöflum fyrir veturinn og því verður hann með sjálftínslu á morgun frá klukkan eitt til fjögur þar sem ungum sem öldnum er boðið að koma og taka þátt.
„Fólk kemur bara með sín ílát eða poka og tínir bara fyrir sig eins mikið og það vill og síðan kemur það með það til mín en ég verð á svæðinu með vog og vigta það sem fólk tínir. Og fólk greiðir fyrir það eitthvað smá gjald en ég miða við hálfvirði miðað við það sem það er úti í búð,“ segir Jón Björn.
Jón Björn var nýlega með sjálftínslu á gulrótum sem tókst einstaklega vel enda kláruðust þær hjá honum á mettíma. Hann segir greinilegt að fólk hafi gaman af svona uppátækjum og ekki síst að komast í tengsl við jörðina og sveitina.
En verður til nóg af kartöflum fyrir alla?
„Heyrðu já, ég fór aðeins fram úr mér í vor því ég setti niður tonn af útsæði og ef mér reiknast rétt til þá ættu að koma svona átta tonn upp úr jörðinni og ég myndi halda að það væru svona fimm tonn eftir núna,” segir Jón Björn hlæjandi.
Hann segist eiga von á góðri mætingu á morgun enda spáin góð og allir í haustuppskerustuði.
„Ég verð með heitt kakó og kaffi og þetta hefur alltaf verið rosalega gaman og spáir góðu veðri,” segir Jón Björn.
Og hvar er bærinn nákvæmlega og hvar keyrir fólk?
„Ég vil að þið finnið mig á Facebook en það heitir „Sjálftínsla Jóns Björns”. Þar sjáið þið viðburð sem heitir „kartöflusjálftínsla”, en þetta er í Stafholtsey í Bæjarsveit. Inni á viðburðinum er nákvæm staðsetning með hniti,“ segir Jón Björn.