Viðræðum í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair miðar hægt. Samninganefndir hittust í dag en svo virðist sem fundurinn hafi ekki skilað miklu.
„Það gekk ekki betur en svo að fundi var slitið án árangurs,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við RÚV að loknum viðræðum í dag. Aðspurður segir hann að enginn nýr fundur sé fyrirhugaður að svo stöddu.
Flugvirkjar hafa átt í kjaradeilu við flugfélagið undanfarna mánuði. Kjarasamningar þeirra losnuðu um síðustu áramót og viðræður hófust í nóvember 2025. Þann 13. febrúar tóku Samtök atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð fyrir Icelandair, ákvörðun um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara.
„Fyrirtækið hefur fram að þessu ekki sýnt áhuga á að ræða við okkur um lausn deilunnar,“ segir Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands (FVFÍ) áður en fundur hófst á hádegi í dag.
Lækkað verulega í samanburði við iðnvirkja
Aðspurður segir Óskar launaliðinn vera helsta ásteytingarsteininn í viðræðunum en félagið telur sína félagsmenn ekki hafa notið sömu þróunar í launakjörum og aðrar stéttir á síðustu árum.
„Við teljum okkur hafa setið eftir þar sem við vorum með bundinn samning í fimm ár. Og það eru fagstéttir sem hafa samið á tímabilinu og hafa fengið bót á sínum kjörum,“ segir Óskar.
Aðspurður hvaða stéttir það séu nefnir Óskar til að mynda iðnfræðinga. Árið 2019 hafi laun flugvirkja verið um 40 þúsund krónum hærri en iðnfræðinga. Á stuttum tíma hafi þróunin þó snúist við og segir Óskar iðnfræðinga nú vera með um 40 þúsund krónum meira í laun en flugvirkja.
„Við erum á tímabilinu fengið sirka 27% kjarabætur á okkar grunnlaunum meðan aðrar stéttir hafa samið um og yfir 50% og það er bara sá munur sem við teljum okkur eiga inni,“ segir hann enn fremur.