Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum vegna umferðarslyss á Vestfjörðum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Hann segir slysið hafa orðið á Barðastrandarvegi. Tvær þyrlur voru kallaðar út í upphafi en annarri var síðar snúið við því að ekki var talin þörf á þeim báðum.
Þyrlan lenti fyrir skömmu.
Fréttin verður uppfærð.