Ríkisstjóri Kaliforníu hefur skrifað undir tilskipun um þróun neyðarrofa fyrir gervigreind. Í tilskipuninni felur Gavin Newsom ríkisstjóri embættismönnum að kanna möguleikann á að skylda tæknifyrirtæki til að þróa neyðarrofa fyrir fullkomnustu gervigreindarlíkön sín.
Newsom kveðst grípa til þessara ráðstafana vegna þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti aðhefðist ekkert í málinu. Trump sagði í vikunni að áhyggjur af framþróun gervigreindar væru uppspunnar og hvatti gervigreindarfyrirtæki til að halda framþróuninni áfram.
Tilskipunin um neyðarrofann er hluti af röð aðgerða sem Newsom ætlar að ráðast í til að koma böndum á gervigreind.
„Alvarleg vanræksla alríkisstjórnarinnar á að skapa gervigreindinni umgjörð eða ábyrgð ætti að vekja áhyggjur hjá Bandaríkjamönnum öllum, sérstaklega hjá forstjórum gervigreindarfyrirtækja sem sjálfir hafa grátbeðið um regluverk,“ sagði Newsom í yfirlýsingu.
Sílíkondalurinn, þar sem flest stærstu bandarísku tæknifyrirtækin eru staðsett, er í Kaliforníu þar sem Newsom er ríkisstjóri.
„Við bíðum ekki með að bregðast við. Við ætlum að flýta vinnu okkar við umfangsmikið og ábyrgt eftirlit með gervigreind áður en það verður of seint.“