Einn var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á sjúkrahús vegna bílveltu sem varð á Vestfjörðum á fimmta tímanum. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.
Hann segir slysið hafa orðið á Barðastrandarvegi. Tvær þyrlur voru kallaðar út í upphafi en annarri var síðar snúið við því að ekki var talin þörf á þeim báðum.
Fréttin hefur verið uppfærð.