Vandræðagangurinn í kringum Framsóknarflokkinn virðist enga enda ætla að taka. Flokkurinn missti átta þingmenn í síðustu kosningum og fór úr þrettán þingmönnum í fimm. Meðal þeirra sem féllu í kosningunum voru þrír sitjandi ráðherrar flokksins. Vinstri stjórninni sem Framsókn var aðili að í sjö ár var fullkomlega hafnað með svo afgerandi hætti að Vinstri grænir féllu alveg út af Alþingi, fengu einungis 2,3 prósent atkvæða, Framsókn galt afhroð með því að tapa átta þingmönnum og Sjálfstæðisflokkurinn fór niður í 19 prósent fylgi, hið minnsta í samanlagðri sögu flokksins frá upphafi.
Orðið á götunni: Er ráðherrafráhvarf sjúkdómur? – Framsókn er búin að vera