Rúmir fimm sólarhringar eru þar til ótímabundið verkfall á þriðja hundrað flugvirkja hjá Icelandair hefst. Eins og hálfs klukkustundar langur fundur hjá ríkissáttasemjara í dag var árangurslaus.
Fulltrúar nokkurra stétta voru á samningafundum hjá ríkissáttasemjara í dag. Samninganefndir flugmanna og Icelandair funduðu til klukkan þrjú og hittast aftur á mánudaginn. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari boðaði fullskipaðar samninganefndir Flugvirkjafélagsins og Samtaka atvinnulífsins til að reyna að finna einhvern flöt í deilunni. Það gekk ekki.
„Við náttúrulega stöndum ennþá við okkar við okkar kröfugerð og það var ekki mikill áhugi af hálfu viðsemjenda að ræða hana,“ segir Óskar Einarsson formaður Flugvirkjafélags Íslands, „þeir halda sig bara við það sem þeir hafa boðið allan tímann. Það eru þessi 3,5 prósent. Við teljum okkur eiga inni vegna launaskriðs sem hefur orðið á því tímabili, sem við höfum verið með fastan samning, og það er það sem við viljum sjá, einhverja nálgun á því.“
Síðast fóru flugvirkjar í ótímabundið verkfall árið 2017. Verkfallið núna hefst aðfararnótt fimmtudags.
„Þetta skapar vandamál hjá mjög mörgum sem að eiga planað flug á þessum tíma. Og vissulega veldur þetta urg. Og það hafa margir álit á þessari boðun. En þetta er bara neyðarúrræði og við höfum í rauninni ekkert annað.“
Það er ekkert sérstaklega gott hljóð í þér?
„Jú, það er það og við erum tilbúnir til sátta.“