Norska ríkisstjórnin hyggst leggja fram frumvarp sem gerir það refsivert með fangelsi að eiga viðskipti við ísraelska landnema. Utanríkisráðherrann gerir ráð fyrir að frumvarpið verði samþykkt í haust og segir að fleiri þjóðir séu að skoða að fara þessa leið.Þetta kemur fram í frétt norska ríkisútvarpsins NRK.
Norðmenn hyggjast leggja fangelsisrefsingu á þá sem versla við ísraelska landnema