Ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó hefur dreifst á ný svæði í landinu, samkvæmt Læknum á landamæra. Faraldurinn er þegar sá versti í landinu til þessa, yfir 3600 hafa látist og 7200 hafa smitast, samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni.
Faraldurinn hefur nánast eingöngu geisað á afskekktum svæðum í norðausturhluta landsins.
Manuel Albela Miranda, faraldursfræðingur hjá Læknum án landamæra, sagði í viðtali við AFP-fréttaveituna í dag að of snemmt væri að segja til um hvort faraldurinn væri í rénun.
„Þó að við viljum vera jákvæð og hvetjandi gagnvart stöðunni verðum við líka að horfast í augu við það sem er að gerast. Raunveruleikinn er sá að það er of snemmt að segja til um að hægt hafi á útbreiðslu faraldursins.“
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sagði á miðvikudag að jákvæð merki væru um að hægt hefði á faraldrinum, en æðsta heilbrigðisstofnun Afríku dró það í efa í gær. Hún sagði ekki hægt að halda því fram að búið væri að ná tökum á faraldrinum.
Læknar án landamæra taka undir það og segja ástandið þvert á móti ógnvænlegt. Guyguy Manangama, aðstoðarrekstrarstjóri samtakanna, segir vísbendingar um ástandið ekki uppörvandi. „Þvert á móti er ástandið ógnvænlegt.“ Hann óttast að fólk sé farið að slaka of mikið á.
Þó að faraldurinn sé í rénun á svæðunum þar sem hann greindist fyrst, í Ituri-héraði í norðausturhluta landsins, hefur hann orðið skæðari í öðrum héruðum.
Miranda segir tilfelli koma upp á mismunandi svæðum. „Þess vegna höfum við áhyggjur af stöðu faraldursins núna.“