Björgunarskipið Sigurvin dró skútu til hafnar á Siglufirði á sjöunda tímanum í dag. Vandræði komu upp í vél skútunnar og það var ekki nægur byr í seglin.
Þetta segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu RÚV. Þrír voru um borð í skútunni sem kom erlendis frá. Skipverjar höfðu samband við viðbragðsaðila í morgun og óskuðu eftir aðstoð vegna þess að skútan var vélarvana. Um stund var útlit fyrir að ekki þyrfti að aðstoða skútuna en seinnipartinn varð ljóst að þess væri nauðsyn.
Jón Þór segir svona útköll fremur algeng. Þetta hafi verið þriðja útkallið í vikunni þar sem björgunarsveit hafi sótt bát á sjó.