„Ég get ekki bjargað manneskju sem er ekki sjálf tilbúin að taka skrefin í átt að eigin bata,“ segir Sólveig Jancauskiene í nýrri grein, en hún hefur skrifað mikið um djúpstæðan vanda sonar síns sem hefur gegnsýrt líf fjölskyldunnar. Sonur Sólveigar, sem er 27 ára gamall, stríðir við kvíða, ADHD, persónuleikaröskun – en umfram allt áfengisvanda. DV birti viðtal við Sólveigu og grein eftir hana seint á síðasta ári. Þar gagnrýndi hún heilbrigðiskerfið og sagði son sinn ekki fá þá hjálp sem hann þyrfti.
Sólveig er hætt að reyna bjarga syni sínum: „Og hættir smám saman að lifa eigin lífi“