Bretar eru búnir að fá nóg af slæmu gengi landsins í Eurovision söngvakeppninni. Þingnefnd hefur verið falið það verkefni að fara ofan í kjölinn á því hvers vegna hefur gengið svona illa undanfarin ár.Sögulegt fallSögulega séð er Bretland eitt af sigursælustu þjóðum Eurovision og hafa unnið keppnina fimm sinnum. En um áratuga skeið voru langtum færri þjóðir sem kepptu og Bretar bjuggu að því líkt og Írar og Maltverjar að mega syngja á ensku.
Bresk þingnefnd rannsakar hvers vegna þjóðinni gengur svona illa í Eurovision – „Núll stig“