Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að meina fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW aðgang að Hvíta húsinu tafarlaust. Þetta tilkynnti hann fyrir skömmu á samfélagsmiðli sínum Truth Social. Trump sakar fjölmiðlana um að dreifa falsfréttum
„Fréttamiðlar ættu ekki stöðugt að geta skrifað eða sagt frá SKÁLDSKAP og LYGUM þegar þeir fjalla um forseta Bandaríkjanna, ríkisstjórn Trumps eða Bandaríkin. Aðrir falsfréttamiðlar munu fylgja í kjölfarið. Þakka ykkur fyrir athyglina á þessu máli!“ skrifar Trump í færslu.
Blaðamenn CNN, Politico og MSNOW bætast þar af leiðandi í hóp blaðamanna sem mega ekki stíga fæti í Hvíta húsið. Trump hindraði til dæmis fréttaveitunni Associated Press aðgang að Hvíta húsinu árið 2025 eftir að fréttaveitan neitaði að kalla Mexíkóflóa „Ameríkuflóa“. Associated Press höfðaði mál gegn banninu sem er enn í vinnslu.
Á síðasta kjörtímabili sínu bannaði Trump fréttaritara CNN, Jim Acosta, aðgang að Hvíta húsinu. Hann fékk þó aðgang aftur eftir að CNN fór í mál.