Akureyrarbær ætlar að sjá um framkvæmd viðbyggingar við Verkmenntaskólann í bænum en ríkið greiðir áfram sinn hluta, sextíu prósent. Samkomulag þess efnis var undirritað á Akureyri í dag.
Árið 2023 lýsti þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, því yfir að byggja ætti 12 til 16 þúsund fermetra við verknámsskóla landsins á næstu árum. Hafist var handa við Fjölbrautaskólann í Breiðholti haustið 2024 en aðrir skólar hafa þurft að bíða.
„Við erum að fara að opna núna í fjölbraut í Breiðholti alveg frábæra aðstöðu. Svo var ég að skrifa undir viljayfirlýsingu með nýjum bæjarstjóra í Reykjanesbæ, þar sem við ætlum að fara að stækka fjölbraut í Reykjanesbæ. Nú á Sauðárkróki er nákvæmlega sama í uppsiglingu eins og hér, þar sem sveitarfélagið er komið af stað með teikningum og aðstæður og allt skipulag,“ segir Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra.
Til þess að flýta fyrir framkvæmdum á þessum stöðum var ákveðið að sveitarfélögin myndu hafa umsjón með framkvæmdunum fyrir ríkið. Þá segir Inga sambærilegra frétta að vænta frá Menntaskólanum á Ísafirði.
„Það verður svona eins og ég hef alltaf sagt, það veit enginn betur en þeir sem búa í heimabyggð hvað er best að gera. Það er mikill hugur í mönnum núna og bara áfram veginn,“ segir Inga.
Hún segir viljayfirlýsinguna hafa fulla þýðingu.
„Nú er september og við skrifum undir viljayfirlýsingu. Hér verð ég mætt aftur í október og þú með míkrafóninn og þá skrifum við undir samning.“