Danmörk og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland að sögn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Danska ríkisútvarpið DR greinir frá.
„Það gleður mig að tilkynna að Bandaríki Norður-Ameríku hafa gert samning við konungsríkið Danmörku og Grænland, sem veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum og öllum öðrum þörfum á Grænlandi og kemur að fullu til móts við ALLAR okkar mörgu bandarísku áhyggjur,“ skrifar hann á Truth Social.
„Við munum þegar í stað hefja ferlið við að þróa mikla hernaðarlega viðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu.“
Að sögn Trumps er þessi lausn góð fyrir Danmörku, Grænland, Bandaríkin og bandamenn allra landanna.
Samkomulagið banni andstæðingum Bandaríkjanna að byggja herstöðvar eða gera viðkvæmar fjárfestingar á Grænlandi án samþykkis Bandaríkjanna. Trump segir samninginn ekki hafa ákveðinn gildistíma.
Metta Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur staðfesti samkomulagið rétt í þessu. Hún segir samninginn eiga að „styrkja öryggi á norðurslóðum og Norður-Atlantshafssvæðinu“.
Samkomulagið viðurkennir fullveldi og landhelgi danska ríkisins og sjálfsákvörðunarrétt grænlensku þjóðarinnar, segir hún.
Forsætisráðuneytið hefur nýverið sent frá sér fréttatilkynningu þar sem ráðuneytið staðfestir samkomulagið sem á að „styrkja öryggi á norðurslóðum og Norður-Atlantshafssvæðinu“.
Mette Frederiksen forsætisráðherra segir:
- Ég er ánægð með að útlit er fyrir gott samkomulag fyrir Grænland, danska ríkið og Bandaríkin. Samkomulag sem styrkir sameiginlegt öryggi okkar á norðurslóðum og Norður-Atlantshafssvæðinu og er þar með einnig gott fyrir NATO og Evrópu. Og samkomulag sem um leið viðurkennir fullveldi og landhelgi danska ríkisins og sjálfsákvörðunarrétt grænlensku þjóðarinnar.
Jens-Frederik Nielsen, formaður Naalakkersuisut, segir í fréttatilkynningunni að samkomulagið muni tryggja og styrkja öryggi Grænlands, danska ríkisins, Bandaríkjanna og vestræna bandalagsins.
- Samkomulagið viðurkennir hagsmuni Grænlands og stöðu okkar í alþjóðlegu samstarfi. Það er okkur öllum til hagsbóta, segir hann.