Danmörk og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá þessu á samfélagsmiðli sínum og Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur staðfesti rétt í þessu.
„Það gleður mig að tilkynna að Bandaríki Norður-Ameríku hafa gert samning við konungsríkið Danmörku og Grænland, sem veitir Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum og öllum öðrum þörfum á Grænlandi og kemur að fullu til móts við ALLAR okkar mörgu bandarísku áhyggjur,“ skrifar Trump á Truth Social.
„Við munum þegar í stað hefja ferlið við að þróa mikla hernaðarlega viðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu.“
Að sögn Trumps er þessi lausn góð fyrir Danmörku, Grænland, Bandaríkin og bandamenn allra landanna.
Samkomulagið banni andstæðingum Bandaríkjanna að byggja herstöðvar eða gera viðkvæmar fjárfestingar á Grænlandi án samþykkis Bandaríkjanna. Trump segir samninginn ekki hafa ákveðinn gildistíma.
Styrkir öryggi á norðurslóðum
Metta Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur segir samninginn eiga að „styrkja öryggi á norðurslóðum og Norður-Atlantshafssvæðinu“.
„Ég er ánægð með að útlit er fyrir gott samkomulag fyrir Grænland, danska ríkið og Bandaríkin. Samkomulag sem styrkir sameiginlegt öryggi okkar á norðurslóðum og Norður-Atlantshafssvæðinu og er þar með einnig gott fyrir NATO og Evrópu. Og samkomulag sem um leið viðurkennir fullveldi og landhelgi danska ríkisins og sjálfsákvörðunarrétt grænlensku þjóðarinnar,“ segir Frederiksen í tilkynningu.
Jens-Frederik Nielsen, formaður Naalakkersuisut, heimastjórnar Grænlands, tekur undir.
„Samkomulagið viðurkennir hagsmuni Grænlands og stöðu okkar í alþjóðlegu samstarfi. Það er okkur öllum til hagsbóta,“ segir hann í tilkynningu.
Trump hefur ekki farið leynt með ásælni sína í Grænland og birti til að mynda fyrr í mánuðinum kort af Bandaríkjunum, Mið-Ameríku, Kanada, Grænlandi og Íslandi þar sem bandaríski fáninn þakti öll lönd.
Fréttin var uppfærð.