Í yfirlýsingu sem Joey De Maio, bassaleikarinn og aðalsprauta sveitarinnar, sendi frá sér segir að náinn fjölskyldumeðlimur hans hafi skyndilega fallið frá, án þess að hafa áður glímt við veikindi.
Sýna sér skilning
„Ég vona að ekkert ykkar þurfi nokkurn tíma að standa þar sem ég stend nú. Ef þið skylduð einhvern tíma lenda í aðstæðum sem þessum veit ég að þið munuð skilja hvað slíkar stundir bera með sér fyrir einstakling, fjölskyldu hans og vini,“ segir í tilkynningunni.
Þá er því einnig sýndur skilningur að frestunin kunni að valda óþægindum fyrir mörg þeirra sem höfðu þegar keypt sér miða á tónleikana og beðist innilegrar afsökunar á því.
„Ég bið ykkur aðeins um að virða friðhelgi fjölskyldu minnar á þessum erfiðu tímum. Ég þakka ykkur öllum fyrir þolinmæðina og tryggðina og hlakka til að sjá ykkur öll á komandi tónleikum.“
Miðarnir gilda áfram
Kemur fram í yfirlýsingunni að miðar sem hafi verið keyptir á tónleikana sem áttu að fara fram 12. og 13. nóvember muni gilda á nýju dagsetningarnar 8. og 9. desember. Þeir sem sjái sér ekki fært að mæta í desember geti einnig haft samband við miðasölu Hörpu fyrir föstudaginn 2. október og fengið endurgreitt.
Í upphafi síðasta árs urðu meðlimir hljómsveitarinnar að fresta fyrstu tónleikum sínum á Íslandi vegna þess að flugið þeirra var fellt niður. Þá var haft eftir þeim að þeim hafi ekki fundist örugg leið til að koma sveitinni til landsins en þá var mikið óveður við landið og því einnig spáð um tónleikahelgina.